Klakavinnslan stofnuð 2018

Þetta byrjaði með tveimur barþjónum sem fannst landinn eiga betri klaka skilið.

Við seljum aðeins klaka sem við myndum nota sjálfir, sem er það allra besta sem tæknin bíður upp á.

Stefna

Markmiðið okkar er að framleiða hágæða klaka og á sama tíma hafa sóun í algjöru lágmarki.

Bílaflotinn okkar keyrir aðeins á metani og rafmagni

Við gerum allt til að finna nýjar leiðir til að minnka sóun í okkar framleiðslu, sem er nú þegar mjög lítil. Allt er endurunnið.

Tegundir

Við handskerum Ísjakana okkar og notum Hoshizaki vélar frá Japan til að framleiða Ísmola og Ísmulning.